Þarftu að tilkynna tjón á langtímaleigubíl?
Ferlið er mismunandi eftir því hvort um er að ræða árekstur eða annars konar tjón.
Ef þú lentir í árekstri á langtímaleigubíl frá okkur skaltu:
- Fyrst gera tjónaskýrslu með aðstoð frá www.arekstur.is
- Svo hafa samband við okkur.
Ef þú lentir í annars konar tjóni (til dæmis beyglaðir bílinn) skaltu:
- Tilkynna það beint í gegnum vefsíðu www.sjova.is undir hlekknum "Tilkynna tjón"
- Svo hafa samband við okkur.
Þarft þú á neyðarþjónustu að halda?
Ef bíllinn er óökufær t.d. sprungið dekk, rafmagnslaus o.s.frv:
- Sprungið dekk (sé ekki varadekk í bílnum og gatið of stórt til hægt sé að nota froðu)
- Leggðu bílnum á öruggum stað og hafðu samband í síma 515 7110 við fyrsta tækifæri.
- Hægt er að hafa samband við dekkjaþjónustu t.d. Seasonal Tyre Change utan opnunartíma gegn gjaldi.
- Rafmagnslaus
- Taxaþjónustur bjóða upp á að gefa start gegn gjaldi
- Ef það kemur oft fyrir að bíll verði rafmagnslaus getur verið gott að panta tíma á Verkstæði svo hægt sé að mæla rafgeyminn
- Rautt vélarljós eða önnur alvarleg bilun
- Stöðvaðu bílinn og hafðu samband í síma 515 7110
- Neyðarþjónusta Brimborgar býður upp á neyðarþjónustu utan opnunartíma gegn gjaldi geti tilfellið ekki beðið.
- (Ath. á aðeins við á virkum dögum eftir klukkan 18:00)
Aðrar bilanir þar sem bíll er ökufær t.d. gult vélarljós.
- Bókaðu tíma á Verkstæði hér við fyrsta tækifæri.
Ef þér finnst ekkert eiga við getur þú spjallað við Góa snjallsvarann okkar hér á síðunni eða haft samband við 515 7110 á opnunartíma
