Mánaðarleiga

Mjög vinsæll valkostur hjá fólki sem þarf ekki endilega langtímaleigubíl allt árið.

Mánaðarleiga er hentug fyrir þá sem þurfa bíl tímabundið, til dæmis í vinnu, ferðalög eða í hefbundna vetrarleigu eða sumarleigu. Leigutíminn er sveigjanlegur, allt frá einum mánuði upp í ellefu mánuði.

Við bjóðum notaða, trausta og vel útbúna bíla á hagkvæmu verði með miklu inniföldu. Með mánaðarleigu sleppur þú við afskriftir, viðhald og tryggingavandræði – þú einfaldlega sækir bílinn og keyrir af stað.

Mánaðarleiga – Leigutími og kostir mánaðarleigu

Mánaðarleiga er kjörin lausn fyrir þá sem þurfa bíl í skemmri tíma – Hvort sem þú þarft bíl í einn mánuð eða allt að ellefu mánuði, þá er mánaðarleiga hjá okkur einföld og hagkvæm leið til að leysa málið, án langtímaskuldbindinga.


Kostir mánaðarleigu

✔ Sveigjanleiki án skuldbindinga
Þú velur þann leigutíma sem hentar þér – frá einum mánuði og upp í ellefu. Engar skuldbindingar til lengri tíma og auðvelt að skila bílnum þegar þú þarft ekki lengur á honum að halda.

✔ Hagkvæm lausn
Mánaðarleiga er oft ódýrari kostur en að fjárfesta í eigin bíl, sérstaklega ef þörfin er tímabundin. Þú færð traustan og vel útbúinn bíl með öllu inniföldu – á hagstæðu mánaðarverði.

✔ Viðhald og þjónusta innifalin
Viðhald, þjónusta og dekkjaskipti eru innifalin í leigunni. Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af viðgerðum eða aukaútgjöldum – við sjáum um það.

Skilmálar Mánaðarleigu

  • Greiðsla fer eingöngu fram í gegnum kreditkort. Viðskiptavinur skal framvísa gild ökuskírteini og kreditkorti í sínu nafni við afhendingu bílsins.
  • Sýndarkort eins og í gegnum Apple Pay eru ekki tekin gild.
  • Fyrir mánaðarleigur greiðir viðskiptavinur fyrsta mánuðinn og greiðir svo einn mánuð í tryggingu við afhendingu bílsins.
  • Mánuður í tryggingu er endurgreitt við lok leigutímabilsins ef ökutæki er tjónlaust og ekkert útistandandi.
  • Fyrirtækjum býðst kostur á að sækja um reikningsviðskipti.
  • Skilyrði langtímaleigu er að viðskiptavinur gefi leyfi til uppflettingar á kennitölu hjá Credit Info.
  • Lágmarksleigutími 1 mánuður

Mánaðarleiga – Bílarnir okkar

Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af bílum til leigu í allt frá 1–36 mánuði. Mánaðarleiga hentar vel fyrir þá sem þurfa bíl tímabundið.

Bílaflotinn er breytilegur og aðlagast eftirspurn hverju sinni athugið að lágmarks leigutími á nýjum bílum er 12 mánuðir. Verðin eru sanngjörn og í samræmi við bílategund og framboð á hverjum tíma. Við leggjum áherslu á einfalt ferli, sveigjanleika og góða þjónustu.